PRENTUN Í YFIR 30 ÁR
Um Prentþjónustu Vesturlands
Prentþjónusta Vesturlands veitir fjölbreytta þjónustu og aðstoð við prentun og hönnun ásamt uppsetningu prentgripa. Við tökum að okkur verkefni af ýmsu tagi.
Sem dæmi um verkefni fyrir fyrirtæki og félagasamtök má nefna: Dreifibréf, bæklingar, plaköt, nafnspjöld, skýrslur, tímarit, tækifæriskort, vinnunótur og reikningseyðublöð.
Sem dæmi um verkefni fyrir einstaklinga má nefna: Myndaalbúm, plaköt, boðs-, jóla- og önnur tækifæriskort, dagatöl, nafnspjöld, söngskrár og sálmaskrár.
Prentþjónusta Vesturlands er með í notkun fjórar stafrænar prentvélar sem prenta á margar gerðir og þykktir af pappír í allt að 450x320 mm stærð
- ásamt frágangsbúnaði af ýmsu tagi, svo sem öflugum Polar-Mohr pappírshníf, Morgana UFO brotvél, upptökuvél með broti og heftingu og kápulímingavél.
Sagan
Prentþjónusta Vesturlands var stofnuð í ársbyrjun 2021 en byggir á gömlum grunni allt frá 1990. Eigendur Prentþjónustu Vesturlands eru feðginin Olgeir Helgi Ragnarsson, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir.
Upphafið má rekja til þess að hjónin Brynja Harðardóttir og Skúli Ingvarsson stofnuðu Fjölritunarstofuna í Borgarnesi árið 1990. Olgeir Helgi hóf rekstur Frétta- og útgáfuþjónustu í Borgarnesi árið 1992. Árið 1999 kaupir Olgeir Helgi ásamt Theodóru Þorsteinsdóttur eiginkonu sinni Fjölritunarstofuna af Brynju og Skúla og sameina fyrirtækin undir heitinu Fjölritunar- og útgáfuþjónustan.
Samfara stofnun Prentþjónustu Vesturlands í ársbyrjun 2021 var Heiður Hörn Hjartardóttir grafískur hönnuður á Bjargi við Borgarnes ráðin til að hanna nýtt logo fyrir fyrirtækið ásamt nýju grunnútliti á heimasíðu og auglýsingum.
Um leið var samið við Aron Hallsson hjá Netvöktun í Borgarnesi um að setja upp heimasíðu fyrir Prentþjónustu Vesturlands á léninu www.prentvest.is þar sem fram koma helstu upplýsingar um fyrirtækið og þjónustuna. Viðskiptavinir hafa auk þess möguleika á að setja upp eigin prentverk og panta prentun á þeim.
Það er eigendum Prentþjónustu Vesturlands mikið ánægjuefni að geta sótt þessa góðu þjónustu í heimabyggð. Og eins og sést er árangurinn með miklum ágætum.
Staðsetningin
Í byrjun var Fjölritunar- og útgáfuþjónustan á jarðhæð hússins að Borgarbraut 49 í Borgarnesi.
Fljótlega flutti starfsemin í rýmra húsnæði á Borgarbraut 55, um 60 m2, sem leigt var af fatahreinsuninni Múlakot.
Sumarið 2004 var starfsemin flutt í um 200 m2 húsnæði í sama húsi á Borgarbraut 55 þar sem áður hafði verið trésmiðjan Brák og var síðar smurstöð og dekkjaverkstæði. Það húsnæði var leigt af Kaupfélagi Borgfirðinga.
Í júní sumarið 2005 var starfsemin flutt í eigið húsnæði eigenda – Kveldúlfsgötu 23, neðri hæð og er þar enn til húsa.
Íbúinn
Árið 2006 komu inn um lúguna hjá okkur 3-4 fríblöð sem voru skrifuð og prentuð í öðrum sveitarfélögum og fyrir vikið var lítið eða ekkert fjallað um Borgarfjarðarhérað í þessum blöðum.
Við þessu langaði eigendur að bregðast og reyna að koma einhverjum af þeim fjölmörgu og athyglisverðu viðburðum sem voru í boði í Borgarfjarðarhéraði á framfæri.
Í desember 2006 var gerð tilraun til að gefa út fjögur tölublöð af Íbúanum, frétta- og auglýsingablaði sem dreift var inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 310, 311 og 320 – þ.e. Borgarfirði norðan Skarðsheiðar og vestur um sunnanvert Snæfellsnes. Viðtökur voru mjög góðar.
Árið 2007 hófst útgáfan aðeins fyrr, eða í nóvember og voru þá gefin út sjö tölublöð. Viðtökur voru svo góðar að ákveðið var að gefa Íbúann út á ársgrundvelli.
Árið 2008 var Íbúinn gefinn út vikulega allt árið. Brot Íbúans frá upphafi og til ársloka 2008 var í stærðinni A4. Auglýsingatekjur minnkuðu hins vegar verulega í kjölfar bankahruns.
Þess vegna var brot Íbúans minnkað í A5 stærð í ársbyrjun 2009. Með þeirri breytingu var hægt að halda útgáfunni áfram allt árið og hefur Íbúinn komið út í um 40 tölublöðum á ári síðan.
Íbúinn hefur enga opinbera styrki þegið vegna útgáfunnar.
PRENTUN
Prentþjónusta Vesturlands veitir fjölbreytta þjónustu og aðstoð við prentun og hönnun ásamt uppsetningu prentgripa. Við tökum að okkur verkefni af ýmsu tagi.
Prentþjónusta Vesturlands er með í notkun fjórar stafrænar prentvélar sem prenta á margar gerðir og þykktir af pappír í allt að 450x320 mm stærð.
Við erum einnig með samninga við öflugar prentsmiðjur til að ráða við stærri prentverkefni.
BÓKBAND
Við getum skorið arkir og prentgripi í nánast hvaða stærð sem er.
Við getum bundið skýrslur, bækur o.fl. inn í hefti, gorm eða límt í kápu.
Prentþjónusta Vesturlands er með frágangsbúnað af ýmsu tagi, svo sem öflugan Polar-Mohr pappírshníf, Morgana UFO brotvél, upptökuvél með broti og heftingu og kápulímingavél.
MARKPÓSTUR
ÍBÚINN
Íbúinn er gefinn út og prentaður í Borgarnesi. Upplagið er 2.000 eintök og Íbúanum er dreift með Íslandspósti til allra fyrirtækja og heimila í póstnúmerum 301, 310, 311, 320, 342 og 356. Eintök liggja einnig frammi á fjölförnum þjónustumiðstöðvum og Íbúinn er aðgengilegur á netinu.
Sagan
Árið 2006 komu inn um lúguna hjá okkur 3-4 fríblöð sem voru skrifuð og prentuð í öðrum sveitarfélögum og fyrir vikið var lítið eða ekkert fjallað um Borgarfjarðarhérað í þessum blöðum.
Við þessu langaði eigendur að bregðast og reyna að koma einhverjum af þeim fjölmörgu og athyglisverðu viðburðum sem voru í boði í Borgarfjarðarhéraði á framfæri.
Í desember 2006 var gerð tilraun til að gefa út fjögur tölublöð af Íbúanum, frétta- og auglýsingablaði sem dreift var inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 310, 311 og 320 – þ.e. Borgarfirði norðan Skarðsheiðar og vestur um sunnanvert Snæfellsnes. Viðtökur voru mjög góðar.
Árið 2007 hófst útgáfan aðeins fyrr, eða í nóvember og voru þá gefin út sjö tölublöð. Viðtökur voru svo góðar að ákveðið var að gefa Íbúann út á ársgrundvelli.
Árið 2008 var Íbúinn gefinn út vikulega allt árið. Brot Íbúans frá upphafi og til ársloka 2008 var í stærðinni A4. Auglýsingatekjur minnkuðu hins vegar verulega í kjölfar bankahruns.
Þess vegna var brot Íbúans minnkað í A5 stærð í ársbyrjun 2009. Með þeirri breytingu var hægt að halda útgáfunni áfram allt árið og hefur Íbúinn komið út í um 40 tölublöðum á ári síðan.
Íbúinn hefur enga opinbera styrki þegið vegna útgáfunnar.
PANTA AUGLÝSINGU




ÞJÓNUSTAN
Prentþjónusta Vesturlands veitir fjölbreytta þjónustu og aðstoð við prentun og hönnun ásamt uppsetningu prentgripa. Við tökum að okkur verkefni af ýmsu tagi.
BOÐSKORT
TÆKIFÆRISKORT
DAGATÖL
SKÝRSLUR
RITGERÐIR
STIMPLAR
NAFNSPJÖLD
Prentþjónusta Vesturlands er með í notkun fjórar stafrænar prentvélar sem prenta á margar gerðir og þykktir af pappír í allt að 450x320 mm stærð ásamt frágangsbúnaði af ýmsu tagi
GETUM VIÐ AÐSTOÐAÐ
SÍMI
NETFANG
HEIMILISFANG
Kveldúlfsgata 23
310 Borgarnes
PRENTUN Í YFIR 30 ÁR
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore t dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui ocia deserunt mollit anim id est laborum Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui ocia deserunt mollit anim id est laborum.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa m id est laborum."
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui ocia deserunt mollit anim id est laborum Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui ocia deserunt mollit anim id est laborum. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Excepteur sint occaecat cupidatat non proident, sunt in culpa qui ocia deserunt mollit anim id est laborum.

ÍBÚINN
FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐ
AUGLÝSINGAR
VERÐSKRÁ
| STÆRÐ | MÁL | VERÐ MEÐ VSK |
|---|---|---|
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |
| 1/1 síða | 20 x 17,5cm | Lorem ips |

